Mar 10, 2010
Sælt veri fólkið.
Ferðalag okkar hjóna um norðurhluta Chile og Bólivíu var í senn ánægjulegt og viðburðaríkt. Náttúruhamfarirnar hér í Chile settu mark sitt á ferðalagið um tíma en við héldum þó okkar striki að mestu leiti. Við ferðuðumst að mestu leiti með rútum bæði að nóttu sem degi en þetta er bæði í senn ódýr og þægilegur ferðamáti þegar ferðast er um landsvæði og maður er með opið ferðaplan eins og við vorum með . Við lögðum af stað aðfaranótt 26 Febrúar til La Serena sem er borg 480 km norðan við Santiago. Áttum frábæran dag þar og lögðumst til hvílu eins og venjulega.
Við vöknuðum svo við jarðskjálftann stóra 8.8 á richter sem varð hér rúmlega hálf fjögur um nóttina. Okkur varð nóg um öll lætin sem okkur fannst standa heillengi yfir. Samt vorum við í 700-800 km fjarlægð frá upptökum skjálftans. Rafmagnið fór af og allt varð dimmt í borginni. Lítið varð um svefn eftir þetta. Um morguninn vissum við að eitthvað mikið hafði gerst því ekkert sjónvarp var og símar virkuðu ekki.
Fengum síðar hringingu frá vinkonu okkar sem býr í Valparaiso, hún færði okkur fréttir af umfangi hamfarana. Við reyndum árangurslaust að koma skilaboðum til fólksins okkar heima en símar virkuðu ekki og Chile nánast sambandslaust við umheiminn um tíma.
Þar sem við vissum að atburðirnir væru í heimsfréttunum var erfiðast að geta ekki látið vita af okkur.
En loks gátum við komið skilaboðum á Facebook um að ekkert amaði að okkur og var það mikill léttir.
Dagarnir á eftir mótuðust talsvert af þessum hrikalega skjálfta.
Neyðarástandi var lýst yfir í landinu og Chileski herinn nánast við stjórn landsins um tíma.
Ferðir felldar niður og flugvöllurinn í Santiago lokaður vegna skemmda.
En við komumst loks frá La Serena í norðurátt og fjær upptökum skjálftans og fórum til borganna Copiapo, San Petro de Atacama sem er lítið sveitaþorp við landamæri Bólivíu og er dásamlegur staður.
Héldum til Antonfagasta sem er stærsta borg í norður Chile og fórum svo til Arica sem er nyrsta borg Chile, staðsett alveg við landamæri Perú.
Það var ánægjulegt að koma á þessa staði alla og hver og einn hefur sinn sjarma og sín einkenni.
Ákváðum svo að bregða okkur til La Paz í Bólivíu yfir á hásléttuna í Los Andes fjallgarðinum.
Þetta ferðalag var sérlega ánægjulegt og farið að degi til.
Við ferðuðumst um sveitahéruð í Bólivíu og sveitadrengurinn úr Biskupstungum hafði unun af að sjá alla sveitabæina og bændurna að störfum á býlum sínum. Búskaparhættir eru mjög frumstæðir í Bólivíu. Allt unnið með skóflu og haka og berum höndunum sýndist mér. Húsin flest hlaðin úr einhverskonar þurkuðum jarðvegi og stráþök þar yfir.
Bændafólkið er markað af brauðstritinu og sér hver sá sem þarna fer um að lífið hefur ekki verið og er ekki auðvelt. Mikil fátækt bæði í sveitum og borgum í Bólivíu enda landið það fátækasta í S-Ameríku en landið er einhvert það fegursta sem sá sem þetta ritar hefur séð á ferðum um heiminn.
Það var mikil upplifun að koma til höfuðborgarinnar La Paz.
Borgin er byggð í djúðum dal sem er um 500 metra djúpur og borgin stendur í um 400-4500 metra hæð yfir sjáfarmáli sem gerir það að verkum að margir fá háfjallaveiki og eiga erfitt með nadadrátt. Við fundum fyrir þessu en allt slapp til.
La Paz er bæði framandi og sérkennileg hvað staðsetningu og mannlíf snertir.
Við vissum bæði að ferð til Bólivíu er ekki hættulaust ferðalag frekar en svo margt annað í lífinu en okkur fannst auðveldara að vera í borginni en við bjuggumst við og Bólivía kom okkur skemmtilega á óvart.
Fólkið virkaði alvarlegt og lokað en var ekkert að áreita okkur. Gaman var að sjá klæðaburð kvennana alla hattana pilsin og skrautlega búningana.
La Paz er með áhugaverðustu stöðum sem ég hef komið á sem og sveitahéruð Bólivíu .
Við héldum síðan að Titicaca vatninu sem er stærsta stöðuvatn í S-Ameríku,204 km langt og 50 km breytt og er á hásléttunni á landamærum Bólivíu og Peru.
Sigldum við um vatnið í um 4 tíma skoðuðum eyjar og virtum fyrir okkur sköpunina og umhverfi vatnsins.
Titicaca og umhverfi þess er einn fegursti staður sem sá sem þetta ritar hefur séð og urðum við bæði hugfanginn af staðnum sem er ægifagur hvert sem litið er.
Við enduðum daginn á því að horfa á sólsetrið og borðuðum við svo nýveiddan fisk úr vatninu sem við höfðum siglt um fyrr um daginn.
Þar sem Inkaborgin Macha Picchu við Cusco í Peru var lokuð vegna flóða þá snérum við aftur til La Paz daginn eftir.
Hoppuðum uppí rútu fulla af Bólivíubúum þegar við heyrðum óma "La Paz..La Paz.. snemma um morguninn þá vissum við bæði að þetta var rétti businn fyrir okkur þó rútan væri af eldri gerðinni og ekkert verið að spá sérstaklega í hvort sæti væri fyrir farþegana eða ekki.
Við köllum þetta að "fanga augnablikið" og gerum þetta stundum þegar við erum að ferðast með bakpokana um heiminn. Við komumst heil til La Paz aftur og keyptum okkur svo far til Santiago daginn eftir.
Urðum að lenda Bæði í Arica nyrst í Chile og Antonfagasta á leið okkar til Santiago sem var ekki draumurinn um leiðina heim en viti menn ,þetta varð til þess að við sáum leiðina sem við höfðum farið á jörðu niðri líka úr lofti.
Heiður himininn gerði það að verkum að Los Andes fjallgarðurinn blasti við okkur í austri þar sem hann er hæstur og hrikalegastur.
Aconcagua hæsta fjall í S-Ameríku tæpir 7000 metrar á hæð blasti við okkur þegar flugvélin byrjaði að lækka flugið að flugvellinum í Santiago.
Nýbúið var að opna flugvöllinn eftir skjálftann stóra en þar sem flugstöðin skemmdist í hamförunum fórum við úr vélinni útá velli og tókum farangur okkar þar líka. Talsverðar vegaskemmdir hafa orðið á vegum og brúm að borginni en búið er að setja fleka yfir stærstu sprungurnar.
Eins og við bjuggumst við var aðkoman í íbúðinni okkar á 25 hæðinni hér í miðborg Santiago ekki fögur eftir skjálftann en byggingin er heil og flestar nýrri byggingarnar stóðu af sér skjálftann hér í Santiago.
Kona sem býr við hliðina á okkur sagði að það hefði verið hryllilegt að vera hér uppi nóttina örlagaríku 27 Febrúar þegar tæplega 1000 Chilebúar létu lífið og enn fleiri eru stórslasaðir og 2.000.000 hafa misst allt sitt.
Við erum þakklát fyrir þá gæfu að hafa verið nýkomin frá því svæði sem verst varð úti og vera nýfarin til La Serena í norðurátt þegar ósköpin gengu yfir. Á ferðalögum sem í lífinu sjálfu þá eru hætturnar víða en sumu ræður maður ekki en þakklæti er mér ofarlega í huga um þessar mundir.
Chilebúar eru gott fólk og hafa reynst okkur sérlega vel og ég óska þess að þeir rétti úr kútnum sem fyrst eftir þær hamfarir sem gengið hafa yfir landið.
Guðmundur Hárlaugsson
Posted at 01:04 pm by heimsreisa
Permalink
Feb 14, 2010
Þá er ferð okkar um suðurhluta Chile lokið að sinni. Ferðin var í alla staði ánægjuleg.
Ferðin stóð yfir í 12 daga og ferðuðumst við um svæðið með rútum sem er þægilegur ferðamáti á svona bakpokaferðalagi. Gott að vera með lítinn farangur og fanga þau augnablik sem á vegi manns verða.
Við heimsóttum nokkrar borgir og bæi hér í suðurhluta landsins og var gaman að sjá hvursu mannlífið er mismunandi eftir því hvar maður er hverju sinni og einnig litarháttur fólks,hæð og útlit getur verið mismunandi eftir því hvar maður er hverju sinni. Talsverð blöndun átti sér stað víða í suðurhlutanum eftir síðari heimstyrjöldina en margir flúðu hingað hörmungar stríðsins og ber þess víða merki.
Landslagið er víða fagurt í suðurhluta landsins en Los Andes fjallgarðurinn liggur alveg suðureftir allri S-Ameríku og aðskilur Chile og Argentínu allt frá Perú og Bólivíu til syðsta hluta Patagóníu.
Það er fjöldinn allur af eldfjöllum sem sem eru í Los Andes fjallgarðinum og nokkur þeirra virk á síðari tímum.
Sá sem þetta skrifar er sérlega hrifinn af fjöllum og heillaðist ég mjög af tignarleika sumra þeirra fjalla og tinda sem báru fyrir augu.
Fjöllin á æskustöðvum mínum í Biskupstungum hafa sjálfsagt talsvert að gera með þennan áhuga minn á fjöllum og fagurri náttúru en ég hef sérstaka ánægu af því að skoða fagrar náttúruperlur hvort sem þær eru á Íslandi ,Chile eða annarsstaðar.
Við ferðuðumst allt frá Santiago sem stendur um miðbik landsins til Puerto Montt sem er syðst í suður Chile en Patagnia tekur svo við enn sunnar. Við ákváðum að fara seinna til Patagoníu því að þar er mun kaldara og viðeigandi fatnaður nauðsinlegur.
Patagónía er stórkostlegt landsvæði og þangað ætla ég mér að fara og skoða fjöllin vötnin og mannlífið þótt síðar verði. Við verðum í Santiago um hríð en við áætlum að skoða norðurhluta landsins en það er óvíst hvenær það verður.
Bestu kveðjur til þeirra sem þetta lesa
Guðmundur Hárlaugsson
Posted at 06:39 am by heimsreisa
Permalink
Jan 28, 2010
Tveggja vikna dvöl að baki
Nú höfum við verið í Chile í tvær vikur og ekki annað hægt að segja að dvölin hefur verið ánægjuleg þann tíma sem liðinn er. Höfum við mest dvalið í höfuðborginni Santiago en við leigjum íbúð hér í miðborginni meðan á dvöl okkar stendur.
Einnig höfum við farið til Valparaiso sem er hafnarborg vestur af Santiago sem er einstaklega skemmtileg og sérstök en þar höfum við komið nokkrum sinnum áður þegar við höfum dvalið í Chile.
Hrabbý hefur verið þar við köfun með vinum okkar sem búa þar. Hún ætlar að fara einu sinni enþá þangað til köfunar áður en við höldum suður á bóginn í byrjun Febrúar.
Til stendur ferð okkar til suður Chile en það er óvíst hvað við verðum lengi á leið okkar en við stefnum á að fara til Punta Arenas sem er syðst í Patagoníu.
Við áætlum að fara með rútum suðureftir og vera einungis með bakpokana okkar en sá ferðamáti gefur ákveðið frelsi í svona ferðum. Við erum með áætlun um þa staði sem okkur langar að stoppa á og skoða en breytum svo þeirri áætlun ef okkur sýnist svo.
Það er mikilvægt að mínu áliti að vera ekki með allt niðurnjörvað því oft er gott að fanga augnablikið í ferðum sem þessum því margt óvænt ber stundum fyrir og þá er gott að fljóta með aðstæðunum sem gerir lífið svo skemmtilegt.
Við munum fara varlega eins og kostur er á leið okkar um suðurhluta þessa lands.
Við þekkjum orðið talsvert af fólki hér í landinu sem allt hefur reynst okkur vel enda er eitt að því sem heillað hefur okkur í Chile er hvað íbúarnir hafa tekið okkur vel.Við höfum kynnst fólki hér sem vart á til hnífs og skeiðar og einnig vel efnuðu fólki og allir hafa verið okkur innan handar og erum við þakklát fyrir það. Komum hér fyrst 2005 frá Ástralíu á leið okkar umhverfis jörðina og síðan dvöldum við hér í 3 mánuði 2006 og svo aftur 2008 í 1 og hálfan mánuð.
Nú er stefnan að ferðast meir en áður og ferðin suðureftir er partur af því. Bestu kveðjur frá Santiago Chile
Guðmndr Hárlaugsson
Posted at 04:52 pm by heimsreisa
Permalink
Jan 14, 2010
Komin til Chile eftir taeplega 50 tima ferdalag
Veit ekki alveg hvort ad vid tokum odyrasta farid naest er vid forum i ferdalag.
Byrjudum a ad thurfa ad taka slatta ur toskunum adur en vid forum til London, frokenin sem var ad tekka okkur inn var svo stif a yfirviktinni.... Datt helst i hug ad hun vaeri Bjarnfredardottir... Tokum dotid ur i flyti svo ad eftir a Islandi var stora spaenska ordabokin ofl.... Eg thurfti alveg ad fara med aedruleysisbaenina 4sinnum til ad hakka ekki madam Stifridi Bjarnfredardottir i mig med hud og hari. Svo ad nuna er madur bara ad shoppa ser thad sem vard eftir heima.
Erum loks komin til Santiago de Chile
Heldum samkvaemt flugmida ad vid hefdum keypt i adeins 3 flugvelar.... en thad var ekki alveg svo.. endudu a ad vera fimm flug!!... Byrjudum a ad fara til London og thadan var forinni heitid til Sao Paulo i Brasiliu thar sem vid attum ad bida i velinni, en vid urdum ad fara i adra minni vel thar.. thad var pinu stuss med folkid ur okkar vel, verid ad faera okkur fram og til baka a vellinum (killing me softly) vorum oll bara farin ad flissa af thessu... Komumst tho til Rio fyrir rest. Nema hvad ad er vid erum komin til Rio de Janero tha var buid ad faera okkur yfir a annad flugfelag. Thad var soldis stuss i kringum thad og vorum vid alveg komin i kompany med staffinu hja Tam airlines hehe.... ottalegar dullur thar. Nema hvad ad Natalia hin fagra Brasiliu stulka for med okkur a ser bil asamt bilstjora um allann flugvoll..undir og yfir og allt um kring ad reyna ad redda thessu. Saum sumse annad sjonarhorn a flugvellinum i Rio. Allavega var flissad ad thessari comediu er vid vorum ad tralla um med bilstjoranum. Billinn stodvadist og out of the blue birtist madur med toskurnar okkar, thetta var sumse starfsmadur a plani hja Lan sem misskildi e-d hvad okkur vantadi. Okkur vantadi sumse brottfararspjold, en toskurnar var buid ad tekka inn alveg til Chile, svo ad ekki mattum vid fa thaer... Thessi saga er allt of long til ad setja her i blogg... nema ad haegt vaeri ad gera 2ja tima comediu-thatt ur thessu. Thetta var alveg stuss daudans fram og til baka jajaja..
Vid komumst allavega fra Rio (ordin soldid mikid threytt a flugunum ollum)... EN er vid vorum ad ganga ut i vel saum vid ad vid vorum a leid til Sao Paulo (aftur), eg var ekki alveg ad fila thetta og let staffid vita ad vid hefdum verid ad koma fra Sao Paulo fyrr ad deginum... But any way, vid forum aftur til Sao Paulo og thadan komumst vid "heim". Var soldid eins og ad koma heim ad lenda her.
AEtlum ad taka thennan dag bara i kosyheit, kikja a Luis kannski a eftir en bida med restina af folkinu... Faum ibudina a morgun, erum buin ad fara og skoda hvar hun er, thetta er sama gata og vid vorum a sidast, verdum a 25 haed thar.
Solin skin sem aldrei fyrr her, vonum ad solin skini allavega i hjortum aettingja og vina heima a Froni.
Er farin ad leita af belti, thar sem StifRidur hja Flugleidum passadi svo vel upp a yfirviktina... tok ovart beltid ur lika.. er eins og bestasti pipari ever nuna.
Bestu kvedjur fra Santiago de Chile
Posted at 09:08 am by heimsreisa
Permalink
Jan 8, 2010
London-Sao Polo-Rio de janeiro-Santiago
Nú erum við ferðalangarnir að leggja í enn eina langferðina til S-Ameríku. Við leggjum af stað 12 Janúar til London og þaðan förum við til Sao Polo í Brasilíu með Brasilíska flugfélaginu Tam og þaðan til Rio de janeiro. Verðum við í Rio í ca 5 tíma en fljúgum síðan til Santiago í Chile þar sem við munum dvelja mest megnis meðan á dvöl okkar stendur. Við munum leigja íbúð í háhýsi á 25 hæð í miðborginni. Ætlunin er síðan að ferðast til S-Chile í 10 daga ca eða kanski lengur og skoða það fagra landslag sem þar er og kynnast fólki og njóta þess sem fyrir ber hverju sinni. Ætlum við að fara með rútum með bakpokana okkar góðu og spila ferðina af fingrum fram og njóta þess sem á vegi okkar verður. Planið er að fljúga síðan til baka til Santiago.
Annað ferðalag er á plani en það er til N-Chile og siðar til Bólivíu og Peru. Fara hásléttuna frá La Paz í Bólivíu stoppa á hinum ýmsu stöðum á leiðinni og skoða Inkaborgina Machu Picchu í Peru. Vel getur verið að þetta eigi eftir að breytast en planið er svona. Við förum líklega til Argentínu líka og svo er aldrei að vita hvað okkur dettur í hug hjónakornunum því við elskum ferðalög á framandi slóðir
Posted at 01:01 pm by heimsreisa
Permalink
Apr 20, 2008
Nú er farið að vora á landinu góða og sumarið nálgast. Sumarið er tíminn til að ferðast um landið okkar. Það eru svo margar náttúruperlur víða um land sem vert er að skoða og að fá gott veður við náttúruskoðun er bara bónus sem gerir hvert gott ferðalag betra. Þar sem ferðalög eru nú eitt mitt helsta áhugamál þá hef ég hug á því að fara víða um land þetta sumarið. Smella fellihýsinu aftaní jeppann og aka af stað þar sem veðrið er best það er málið þegar maður fer í útilegu hér á landi. Austur eða vestur frá höfuðborginni ræðst oft á síðustu stundu jafnvel ekki fyrr en við erum lögð af stað. Það getur vel verið að við förum líka erlendis í sumar en það mun koma í ljós síðar.Engin langferðalög eru nú á plani enda erum við nýlega komin úr einu slíku. Þrátt fyrir að við höfum farið nokkuð víða um heiminn þá erum við ekki búin að ferðast mikið hér um nágranalöndin og alveg nauðsinlegt að bæta eitthvað úr því á næstunni. Ég væri alveg til í að vera í einhvern tíma á frjálslegu ferðalagi um evrópulöndin enda margt að sjá þar. Ég óska ykkur góðrar ferðar ef þið sem þetta lesið eruð að fara að ferðast á næstunni hvort sem það er innanlands eða erlendis. Gummi ferðalangur.
Posted at 09:48 am by heimsreisa
Permalink
Mar 30, 2008
Eftir langt ferðalag frá Santiago í Chile erum vid komin til Íslands.Við þökkum ykkur öllum fyrir samfylgdina og kveðjurnar hér á síðunni og óskum ykkur alls hins besta í leik og starfi. Gummi og Hrabbý
Posted at 06:09 pm by heimsreisa
Permalink
Mar 25, 2008
Okkur voru ad berast tau hrædilegu tídindi ad Anna systir hennar Hrafnhildar hefdi dáid um hádegisbil í dag. Hún vard brádkvödd adeins 39 ára gömul.Vid munum koma heim til Íslands eins fljótt og hægt er.Vid tökkum ykkur samfylgdina hér á sídunni.
Kærar kvedjur til ykkar allra. Gummi og Hrabbý
Posted at 10:58 am by heimsreisa
Permalink
Mar 20, 2008
Vid erum ad fara til Valparaiso um hádegisbil á morgun og verdum tar til sunnudags. Vid munum hitta Luis vin okkar tar en hann ætlar ad kynna okkur fyrir módur sinni og systur en tær búa í Valparaiso. Luis ætlar ad elda fyrir okkur fisk sem heitir reineta og eitthvad fleira og hlakkar okkur til ad prufa svona heimatilbúinn mat. Luis fór í gær til Valparaiso og verdur væntanlega búinn ad veida í sodid tegar vid komum seinnipartinn á morgun. Mikill fjöldi fólks fer í páskafríinu úr höfudborginni og verdur margt um manninn í Valparaiso og Viña de Mar sem er bær skammt frá Valparaiso. Tad er ferdahugur í okkur núna en vid erum ad skipuleggja ferdalag í nordurátt frá Santiago sennilega seinnipart næstu viku og erum ad spá í ad stoppa í borgum og bæjum á leid okkar um nordur Chile og fanga tau ævintýri sem á vegi okkar verda hverju sinni. Vid stefnum á ad fara til La Paz í Bólivíu og sjá svo til hvad vid gerum eftir tad. Vid munum ferdast á næturnar ad mestu leiti og skoda okkur um á daginn tar sem vid stoppum hverju sinni. Margir spennandi stadir eru á tessari leid og getur vel verid ad vid töku einverja útúrkróka á leidinni ef svo ber undir,tad kemur bara í ljós sídar. Bestu kvedjur til ykkar allra sem tetta lesid og hafid tad sem best um pákana sem adra daga. Gummi í Santiago Chile.
Posted at 04:38 pm by heimsreisa
Permalink
Mar 17, 2008
Komum frá Montivideo í Uruguay seint í gærkvöldi og vorum á hóteli hér í Buenos Aires í nótt. Tad var ánægjulegt ad koma til Uruguay en tetta var í fyrsta sinn sem vid komum tangad. Vid erum ad leggja upp í langferd í kvöld tví vid erum búin ad kaupa okkur ferd med rútu til Santiago ,en ferdalagid mun taka um 21 klst. Verdum væntanlega í Santiago um midjan dag á morgun. Vid ferdumst med CATA sem er tekkt rútufyrirtæki hérna og tad mun ekki fara illa um okkur á leidinni tví tetta eru velútbúin farartæki og vid splæstum á okkur tví besta sem var í bodi "Royal Class"tad má nú ekki minna vera midad vid svona langt ferdalag. Bestu kvedjur frá Buenos Aires.Gummi
Posted at 10:29 am by heimsreisa
Permalink